Þessi uppskrift er mjög einföld og ekki skemmir fyrir hvað hún er bragðgóð!
Innihald:
2 bollar af klaka
1 bolli af möndlumjólk
1/2 bolli grísk jógúrt
1 banani
1 matskeið af Matcha green tea durfti
2 teskeiðar af stevía (valkvætt)
50 ml af Baileys Deliciously Light
Aðferð:
Blanda öllum hráefnum saman í blandara í 60-90 sekúndur eða þar til þú hefur náð áferðinni sem þú vilt. Til þess að þykkja má bæta við klökum eða mjólk til þess að þynna örlítið eftir.