28 Apr, 2022
Uppskrift: 100ml Baileys Original Irish Cream 2 egg 30ml mjólk 4 brauðsneiðar 40 g smjör Þeyttur rjómi, hindber, bláber, súkkulaðisósa, síróp og / eða flórsykur til að skreyta. Aðferð: Þeytið eggin, mjólkina og Baileys saman. Hellið yfir brauðsneiðarnar á disk, látið liggja í bleyti í nokkrar mínútur. Bræðið smjörið á stórri pönnu við meðalhita. Steikið síðan brauðsneiðarnar í um það bil 2 mínútur eða þar til þær hafa gulnað á hvorri hlið. Raðið brauðinu á diska. Skreytið með þeyttum rjóma, handfylli af hindberjum og bláberjum, súkkulaðisósu, gylltu sýrópi og stráið yfir flórsykri.